Nanna Kristjánsdóttir Framúrskarandi ungur Íslendingur 2024
Nanna Kristjánsdóttir hlaut titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur 2024 fyrir störf/afrek á sviði menntamála á verðlaunaathöfninni Framúrskarandi ungir Íslendingar sem fór fram í Höfuðstöðinni, Elliðaárdal síðdegis í gær, 4. desember.
Það er JCI hreyfingin á Íslandi sem stendur fyrir verkefninu, en verðlaunin hafa verið veitt árlega síðan árið 2002. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir er verndari verkefnisins og veitti hún Topp tíu hópnum viðurkenningu ásamt Landsforseta JCI Íslands, Ölmu Dögg Sigurvinsdóttur.
Mynd: Ragnar F. Valsson
Á hverju ári óskar JCI hreyfingin eftir tilnefningum til verðlaunanna til almennings og dómnefnd velur síðan 10 einstaklinga sem hljóta viðurkenningu fyrir að vera Framúrskarandi ungir Íslendingar vegna einstaks framlags þeirra til íslensks samfélags. Hér er hægt að lesa um Topp tíu hópinn í ár. Verðlaunin sjálf eru síðan veitt til eins einstaklings sem þykir skara sérstaklega fram úr. Í Topp tíu hópnum í ár voru Eva Michelsen, Embla Bachmann, Guðjón Reykdal Óskarsson, Ingólfur Snær Víðisson, Kristfríður Rós Stefánsdóttir, Rima Charaf Eddine Nasr, Róbert Ísak Jónsson og Tinna Hrund Hlynsdóttir Hafberg.
Í umsögn dómnefndar kemur fram að Nanna hafi lagt mikið til stærðfræðisamfélagsins, og raunar vísindasamfélagsins alls, með frumkvæði sínu og dugnaði. Hún stofnaði og hefur séð um framkvæmd námsbúðanna Stelpur diffra þar sem stelpur og stálp á aldrinum 16-18 ára koma saman í eina viku til að vinna að verkefnum tengdum stærðfræði og hitta fjölbreyttan hóp kvenna með bakgrunn í greininni. Nanna hefur unnið ötullega að því að auka áhuga og sjálfstraust ungra nemenda, vinna gegn kynjahalla í stærðfræði og tengdum greinum og kynna stærðfræði og vísindi fyrir börnum og unglingum. Stelpur diffra hafa verið haldnar á hverju sumri frá árinu 2021 en sumarið 2024 kom hún einnig á fót námsbúðunum Kennarar diffra fyrir starfandi grunn- og framhaldsskólakennara. Hægt er að lesa meira um Nönnu hér
Dómnefndin í ár var skipuð af Elizu Reid rithöfundi og fyrrum forsetafrú. Freyju Steingrímsdóttur framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands, Anítu Sóleyju Scheving Þórðardóttur, nemi og framúrskarandi ungur Íslendingur 2023 Kjartan Hansson senator í JCI og hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands og Alma Dögg Sigurvinsdóttir Landsforseti JCI Íslands 2024.
Verðlaunin eru hluti af stærri alþjóðlegum verðlaunum JCI hreyfingarinnar en árlega eru 10 framúrskarandi einstaklingar verðlaunaðir á heimsþingi JCI. Nanna verður því tilnefnd frá Íslandi til alþjóðlegu verðlaunanna á næsta ári. Erlendis eru verðlaunin nefnd TOYP verðlaun, Ten Outstanding Young Persons of the World, en á meðal verðlaunahafa eru Elvis Presley, Bruce Lee og Bill Clinton.
Á meðal þeirra sem hafa hlotið þennan titil síðustu ár á Íslandi eru Ingileif Friðriksdóttir fjölmiðlakona, Katrín Jakobsdóttir fyrrv. forsætisráðherra, Ævar Þór Benediktsson bókahöfundur, Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona, Emilíana Torrini söngkona, Vilborg Arna Gissurardóttir Everest-fari, Sævar Helgi Bragason stjörnufræðingur, Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og Rakel Garðarsdóttir stofnandi Vakandi, samtaka um aukna vitundarvakningu varðandi sóun matvæla. Fleiri vinningshafa má finna hér (https://framurskarandi.is/um-verdlaunin/verdlaunahafar-fyrri-ara/)
Verðlaunin eru bæði hvatning fyrir þessa framúrskarandi einstaklinga til áframhaldandi starfa og á sama tíma innblástur og hvatning til okkar allra að leggja okkar af mörkum til að byggja betra samfélag.
JCI Ísland óskar Nönnu hjartanlega til hamingju með titilinn og topp tíu hópnum fyrir framúrskarandi störf á þeirra sviði.