Embla Gabríela Börgesdóttir Wigum

Störf/ afrek á sviði menningar

Embla Wigum er framúrskarandi frumkvöðull á sviði lista. Hún er hæfileikabúnt en efnið sem hún gefur frá sér er uppfullt af sköpunargáfu og er mikill metnaður lagður í framleiðsluna.

Hún er lærður förðunarfræðingur og notar eigið andlit sem striga sinna málverka. Hún hefur deilt verkum sínum á samfélagsmiðlum í nokkur ár og er hún með yfir 2 milljónir manna sem fylgjast daglega með því sem hún gerir. Hún hefur verið nefnd sem einn færasti förðunarfræðingur Íslands. Áhugi hennar á förðun vaknaði snemma og byrjaði fyrir alvöru þegar hún eignaðist sína fyrstu augnskuggapallettu 15 ára. Hún er dugleg að deila förðunum sem hún gerir með fylgjendum sínum. 

Hún hefur unnið með stærstu fyrirtækjum í heiminum líkt og Amazon Prime, Marvel, Disney, o.s.frv. Þar sem hún nýtir sköpunargáfuna til að skapa töfra fyrir okkur hin til að njóta.