Ólöf Bjarki Antons 

Störf á sviði siðferðis og/ eða umhverfismála 

Ólöf Bjarki hefur mjög sterka réttlætiskennd og er ófeimið við að segja sínar skoðanir.  Hán hefur verið öflugt í samtökum Hinsegins fólks og barist fyrir réttlæti trans fólks. Hán hefur komið fram í útvarpi og sjónvarpi til að útskýra málefni transfólks og upplýsa okkur hin um hvað og hvernig við ættum að umgangast trans fólk og hvernig þau vilja láta tala við sig. 

Þau séu bara manneskjur eins og við með sínar tilfinningar og að þetta kemur kynhneigð ekkert endilega við. Ólöf Bjarki er með B.A. gráðu í Stjórnmálafræði með kynjafræði sem aukagrein. 

Ólöf Bjarki var formaður Trans Íslands árin 2022-2024  og fékk félagið Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar árið 2023. Rökstuðningur fyrir verðlaununum var sú að Fé­lagið hafi með starfi sínu valdið grund­vallar­breytingu á skilningi fólks á kynja­jafn­rétti og hefur Ólöf Bjarki tekið mikinn þátt í þessu starfi.

Í gegnum árin hafi fé­lagið staðið fyrir um­fangs­mikilli fræðslu til al­mennings um mál­efni trans fólks og unnið fag­lega með stjórn­völdum til að tryggja kyn­rænt sjálf­ræði og treysta réttindi allra kynja. Trans Ís­land vinnur náið með al­manna­heilla­sam­tökum hér á landi og er­lendis gegn vaxandi hatri í garð trans fólks sem og alls hin­segin fólks.

Ólöf er einnig hjálpsamt við vini sitt og hefur td. í hestamennskunni verið mörgum innan handar í sínum störfum bæði börnum og fullorðnum. Hán hefur stundað hestamennsku á Dalvík og segir þar vera að finna góða reiðvegi bæði til fjalls og fjöru.