Róbert Ísak Jónsson
Einstaklingssigrar og/eða afrek
Róbert er afreks íþróttamaður og sundkappi. Hann hefur sett fjölda Íslandsmeta og er margfaldur Íslandsmeistari í sundi. Á ólympíumótinu í Tókýó 2021 varð hann sjötti í 100 metra flugsundi, tíundi í 100 metra bringusundi og sjötti í 200 m fjórsundi.
Róbert keppti á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympic, í París í sumar. Hann fékk svokallaða Bipartite-úthlutun en slík boð eru veitt hæfum íþróttamönnum sem ná ekki lágmörkum af einhverjum ástæðum.
Hann vann brons á Evrópumeistaramóti fatlaðra í sundi og hafnaði í sjötta. sæti í úrslitum í 200 metra fjórsundi í flokki S14 á Ólympíumótinu í Tókýó nú fyrir stuttu. Róbert stóð sig gríðarlega vel á Ólympíumótinu.
Fyrir utan það að stunda sína íþrótt og æfa sig í að vera hraðari, sterkari og betri þá hefur hann verið ötull talsmaður fyrir hreyfingu hjá fötluðum börnum og hefur sett sér það markmið að fá fleiri fötluð börn til að stunda íþróttir. Þar sem því miður stunda aðeins 4% fatlaðra barna á Íslandi sem stunda íþróttir miðað við yfir 80% ófatlaðra barna.