Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 15. skiptið.
Í ár bárust um tvö hundruð tilnefningar frá almenningi en dómnefnd hefur haft það erfiða verkefni undanfarna daga að velja þar úr tíu framúrskarandi einstaklinga. Listann er að finna hér að neðan.
Ítarupplýsingar um einstaklingana er hægt að finna með því að smella á nafn þeirra í listanum.
Topp tíu hópinn í ár skipa:
Arna Sigríður Albertsdóttir
Einstaklingssigrar og/eða afrek
Búi Bjarmar Aðalsteinsson
Störf á sviði viðskipta, frumkvöðla og/eða hagfræði
Elín Edda Sigurðardóttir
Störf /uppgötvanir á sviði læknisfræði
Jón Margeir Sverrisson
Einstaklingssigrar og/eða afrek
Kristín Þorsteinsdóttir
Einstaklingssigrar og/eða afrek
Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch
Störf /uppgötvanir á sviði læknisfræði
Sigríður Dögg Arnardóttir
Leiðtogar/afrek á sviði menntamála
Tara Ösp Tjörvadóttir
Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
Tyrfingur Tyrfingsson
Störf /afrek á sviði menningar
Þórunn Ólafsdóttir
Störf á sviði mannúðar- eða sjálfboðaliðamála
Af þessum tíu hefur dómnefnd jafnframt valið einn verðlaunahafa.
Þér er boðið á verðlaunaafhendinguna!
Það verður spennandi að sjá hver hlýtur verðlaunin í ár en forseti Íslands mun afhenda þau þriðjudaginn 24. maí næstkomandi, kl 17:00, í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Afhending verðlaunanna er opin almenningi en nánari upplýsingar um viðburðinn eru hér:
Framúrskarandi ungur Íslendingur 2016 – Verðlaunaafhending