Sólborg Guðbrandsdóttir framúrskarandi ungur Íslendingur 2022

Sólborg Guðbrandsdóttir hlaut í dag titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur 2022. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson afhenti verðlaunin í KR heimilinu ásamt Ríkeyju Jónu Eiríksdóttur, landsforseta JCI. Það eru einmitt samtökin JCI á Íslandi sem veita verðlaunin á hverju ári en Sólborg var tilnefnd fyrir framlag sitt og afrek á sviði menntamála. Verðlaunagripurinn er einstakt listaverk eftir glerlistamanninn Jónas Braga Jónasson.

Ríkey Jóna Eiríksdóttir landsforseti JCI, Sólborg Guðbrandsdóttir Framúrskarandi Ungur Íslendingur 2022 og Forseti Íslands hr. Guðni Th. Jóhannesson. Mynd: Ragnar F. Valsson

Á hverju ári óskar JCI hreyfingin eftir tilnefningum til verðlaunanna og dómnefnd velur síðan 10 einstaklinga sem hljóta viðurkenningu fyrir að vera Framúrskarandi ungir Íslendingar vegna einstaks framlags þeirra til íslensks samfélags. Hér er hægt að lesa um Topp tíu hópinn í ár. Verðlaunin sjálf eru síðan veitt til eins einstaklings sem þykir skara sérstaklega fram úr. Aðrir sem voru tilnefndir í ár eru Anna Sæunn Ólafsdóttir, Björn Grétar Baldursson, Daníel E. Arnarsson, Embla Gabríela Börgesdóttir Wigum, Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, Ingvi Hrannar Ómarsson ,Stefán Ólafur Stefánsson, Viktor Ómarsson og Vivien Nagy.

Verðlaunin eru alþjóðlegt verkefni JCI hreyfingarinnar en árlega eru 10 framúrskarandi einstaklingar verðlaunaðir á heimsþingi JCI. Sólborg verður því tilnefnd frá Íslandi til alþjóðlegu verðlaunanna á næsta ári. Erlendis eru verðlaunin nefnd TOYP verðlaun, Ten Outstanding Young Persons of the World, en á meðal verðlaunahafa eru Elvis Presley, Bruce Lee og Bill Clinton.

Verðlaunin eru bæði hvatning fyrir þessa framúrskarandi einstaklinga til áframhaldandi starfa og á sama tíma innblástur og hvatning til okkar allra að leggja okkar af mörkum til að byggja betra samfélag.

Þetta var í 20. skiptið sem verðlaunin eru afhent en á meðal þeirra sem hafa hlotið þennan titil síðustu ár eru Ingileif Friðriksdóttir fjölmiðlakona, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ævar Þór Benediktsson bókahöfundur, Margrét Lára Viðarsdóttir knattspyrnukona, Emilíana Torrini söngkona, Vilborg Arna Gissurardóttir Everest-fari, Sævar Helgi Bragason stjörnufræðingur, Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og Rakel Garðarsdóttir stofnandi Vakandi, samtaka um aukna vitundarvakningu varðandi sóun matvæla. Fleiri vinningshafa má finna hér (https://framurskarandi.is/um-verdlaunin/verdlaunahafar-fyrri-ara/)

Dómnefndina skipaði Þórun Eva Pálsdóttir framúrskarandi ungur Íslendingur 2021 og stofnandi Míu Magic, Eyvindur Elí Albertsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og senator JCI, Geir Finnsson, forseti LUF, Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík og Ríkey Jóna Eiríksdóttir, landsforseti JCI 2022.

 

Um Sólborgu og tilnefninguna:

Sólborg Guðbrandsdóttir er brautryðjandi í baráttu mannréttinda og réttinda kvenna. Hún berst gegn skaðlegu feðraveldi og nauðgunarmenningu, hefur hvatt ungt fólk til að breyta rétt og veitt þeim innblástur. 

Árið 2016 stofnaði Sólborg instagram reikninginn Fávitar en þar fræddi hún ungt fólk um kynlíf, samskipti og fordóma en aðgangurinn hætti göngu sinni árið 2020. Eftir að hafa byrjað að birta skjáskot og dónaleg skilaboð sem hún hafði fengið sjálf þá endaði það með því í að reikningurinn varð af því sem það er orðið í dag. 

Í kjölfar reikninginsins  þá skrifaði hún og gaf út bækurnar Fávitar og Aðeins færri fávitar en þriðja bókin, Fávitar og fjölbreytileikinn kom út í nóvember 2022. Allar bækurnar eiga það sameiginlegt að vera fræðslubækur fyrir ungt fólk og fjalla um kynlíf, ofbeldi, samskipti, líkamann og fjölbreytileika.

Í fyrstu tveimur bókunum tekur Sólborg meðal annars saman spurningar sem henni hafa borist og svör, vangaveltur unglinga um samskipti kynjanna, kynlíf og sambönd er svarað og áhersla lögð á sterka sjálfsmynd þeirra og sjálfsöryggi. Nýjasta bókin leggur svo áherslu á það að fræða unga sem aldna um alla liti regnbogans á mannamáli og auka þannig skilning almennings á fjölbreytileika samfélagsins. Bækurnar hafa verið nýttar í kennslu í mörgum grunn- og framhaldsskólum um allt land.

Frá því Sólborg stofnaði reikningin Fávitar hefur hún haldið fjölda fyrirlestra í grunnskólum og framhaldsskólum um land allt og frætt ungmenni um kynlíf, samskipti og mörk svo eitthvað sé nefnt. Hún hlaut Uppreisnarverðlaunin í maí 2020 en verðlaunin eru veitt af Uppreisn, ungliðahreyfingu Viðreisnar. Verðlaunin eru veitt sem viðurkenning og þakklætisvottur fyrir óeigingjarnt starf í þágu frelsis, jafnréttis og opnara samfélags, en það eru grunngildi hreyfingarinnar. Hún hlaut verðlaunin í einstaklingsflokki en hún hefur stuðlað að þessum gildum, sér í lagi í þágu kynfrelsis. 

Auk þess að vera góð fyrirmynd, rithöfundur og brautryðjandi í sínu máli þá er Sólborg einnig tónlistarkona en hún notar sviðsnafnið Suncity en það er beinþýðing af nafninu hennar. Hún hefur gefið út nokkur lög, skrifaði undir samning hjá einu stærsta útgáfufyrirtæki heims, Sony Music árið 2020 ásamt því tók hún þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2018 og 2022.

Sólborg leiddi einnig starfshóp hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem vann tillögur um markvissari kennslu um kynheilbrigði og ofbeldisforvarnir í grunn- og framhaldsskólum á Íslandi sumarið 2021.