Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 21. skipti.

Auglýst er eftir til­nefn­ing­um á hverju ári og get­a allir sent inn tilnefningu fyrir framúrsk­ar­andi ung­an Íslend­ing. Sér­stök dóm­nefnd fór svo yfir til­nefn­ing­ar og valdi úr tíu einstaklinga sem fá viðurkenningu og þar af einn verðlauna­hafa.

Dómnefnd skipaði Þórunn Eva Pálsdóttir Framúrskarandi ungur Íslendingur 2021, Eyvindur Elí Albertsson verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og senator JCI, Geir Finnson forseti LUF, Ragnhildur Helgadóttir rektor Háskólans í Reykjavík og Ríkey Jóna Eiríksdóttir landsforseti JCI 2022.

Eftirfarandi Íslendingar hljóta viðurkenningu í ár.

Af þessum hópi verður einn einstaklingur valinn sem  Framúrskarandi Ungur Íslendingur árið 2022.

Verðlaunin verða veitt 30. nóvember næstkomandi og mun Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson afhenda verðlaunin ásamt landsforseta JCI.

Fyrrum vinningshafar eru meðal annarra:

  • Þórunn Eva Pálsdóttir
  • Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir
  • Ingileif Friðriksdóttir
  • Pétur Halldórsson
  • Ævar Þór Benediktsson
  • Tara Ösp Tjörvadóttir
  • Rakel Garðarsdóttir