TOPP TÍU 2020
Sara Björk Gunnarsdóttir
Einstaklingssigrar og/eða afrek
Sara Björk Gunnarsdóttir er íslensk knattspyrnukona sem leikur með Lyon í Frakklandi. Hún hefur hér um bil unnið allt sem hægt er að vinna í knattspyrnu. Þar má telja að hún hefur unnið þýsku deildina fjórum sinnum, sænsku deildina fjórum sinnum, sænska ofurbikarinn nokkrum sinnum ásamt þýska bikarnum líka. Hún er fæddur leiðtogi og sigurvegari á sínu sviði.
Landsliðsferill hennar er einnig glæsilegur en hún hefur keppt á stórmótum ásamt því að vera fyrirliði íslenska landsliðsins.
Í ár ber það helsta að hún vann Meistaradeild Evrópu og skoraði mark í úrslitaleiknum! Mögnuð kona hér á ferð!