Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 17. skiptið.

Í ár bárust rúmlega tvö hundruð tilnefningar frá almenningi en dómnefnd hefur haft það erfiða verkefni að velja úr tíu framúrskarandi einstaklinga. Eftirfarandi Íslendingar hljóta viðurkenningu í ár:

  • Daníel Bjarnason
    • Störf /afrek á sviði menningar
  • Guðmundur Karl Guðmundsson
    • Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
  • Hlín Magnúsdóttir Njarðvík
    • Leiðtogar/afrek á sviði menntamála
  • Ingileif Friðriksdóttir
    • Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
  • Katrín Björk Guðjónsdóttir
    • Einstaklingssigrar og/eða afrek
  • Marta Magnúsdóttir
    • Störf á sviði mannúðar- og sjálfboðaliðamála
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
    • Einstaklingssigrar og/eða afrek
  • Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch
    • Störf á sviði tækni og vísinda
  • Styrmir Barkarson
    • Störf á sviði mannúðar- eða sjálfboðaliðamála
  • Örlygur Hnefill Örlygsson
    • Störf á sviði viðskipti, frumkvöðla og/eða hagfræði

Topp-10-FB-Allir-2018-v3

Af þessum hópi verður einn einstaklingur valinn sem Framúrskarandi Ungur Íslendingur árið 2018.

Athöfnin til að veita viðurkenninguna verður haldin í Borgarleikhúsinu þann 23. Maí kl. 17:30 húsið opnar kl.17:00 og mun Forseti Íslands veita verðlaunin. Afhendingin er opin almenningi en nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á facebook .

Til að fá frekari upplýsingar um verkefnið má hafa samband við verkefnastjórann Önnu Pálsdóttir í síma 7827792.