Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 16. skiptið.
Í ár bárust um hundrað tilnefningar frá almenningi en dómnefnd hefur haft það erfiða verkefni undanfarna daga að velja úr tíu framúrskarandi einstaklinga. Eftirfarandi Íslendingar hljóta viðurkenningu í ár:
- Almar Blær Sigurjónsson
- Störf /afrek á sviði menningar
- Aron Einar Gunnarsson
- Einstaklingssigrar og/eða afrek
- Áslaug Ýr Hjartardóttir
- Einstaklingssigrar og/eða afrek
- Eva Dröfn Hassel Guðmundsdóttir
- Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
- Margrét Vilborg Bjarnadóttir
- Störf á sviði viðskipti, frumkvöðla og/eða hagfræði
- Martin Ingi Sigurðsson
- Störf /uppgötvanir á sviði læknisfræði.
- Sara Mansour
- Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
- Steinunn Ása Þorvaldsdóttir
- Störf /afrek á sviði menningar
- Þórunn Ólafsdóttir
- Störf á sviði mannúðar- eða sjálfboðaliðamála
- Ævar Þór Benediktsson
- Leiðtogar/afrek á sviði menntamála.
Af þessum hópi verður einn einstaklingur valinn sem Framúrskarandi Ungur Íslendingur árið 2017.
Athöfnin til að veita viðurkenninguna verður haldin í Háskólanum í Reykjavík þann 28. Ágúst kl. 17:30 og mun Forseti Íslands veita verðlaunin. Afhendingin er opin almenningi en nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á vefsíðunni framurskarandi.is.
Til að fá frekari upplýsingar um verkefnið má hafa samband við verkefnastjórann Elizes Low í síma 8927885.