Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 17. skiptið.
Í ár bárust rúmlega tvö hundruð tilnefningar frá almenningi en dómnefnd hefur haft það erfiða verkefni að velja úr tíu framúrskarandi einstaklinga. Eftirfarandi Íslendingar hljóta viðurkenningu í ár:
- Daníel Bjarnason
- Störf /afrek á sviði menningar
- Guðmundur Karl Guðmundsson
- Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
- Hlín Magnúsdóttir Njarðvík
- Leiðtogar/afrek á sviði menntamála
- Ingileif Friðriksdóttir
- Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
- Katrín Björk Guðjónsdóttir
- Einstaklingssigrar og/eða afrek
- Marta Magnúsdóttir
- Störf á sviði mannúðar- og sjálfboðaliðamála
- Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
- Einstaklingssigrar og/eða afrek
- Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch
- Störf á sviði tækni og vísinda
- Styrmir Barkarson
- Störf á sviði mannúðar- eða sjálfboðaliðamála
- Örlygur Hnefill Örlygsson
- Störf á sviði viðskipti, frumkvöðla og/eða hagfræði
Af þessum hópi verður einn einstaklingur valinn sem Framúrskarandi Ungur Íslendingur árið 2018.
Athöfnin til að veita viðurkenninguna verður haldin í Borgarleikhúsinu þann 23. Maí kl. 17:30 húsið opnar kl.17:00 og mun Forseti Íslands veita verðlaunin. Afhendingin er opin almenningi en nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á facebook .
Til að fá frekari upplýsingar um verkefnið má hafa samband við verkefnastjórann Önnu Pálsdóttir í síma 7827792.