Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 21. skipti.
Auglýst er eftir tilnefningum á hverju ári og geta allir sent inn tilnefningu fyrir framúrskarandi ungan Íslending. Sérstök dómnefnd fór svo yfir tilnefningar og valdi úr tíu einstaklinga sem fá viðurkenningu og þar af einn verðlaunahafa.
Dómnefnd skipaði Þórunn Eva Pálsdóttir Framúrskarandi ungur Íslendingur 2021, Eyvindur Elí Albertsson verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og senator JCI, Geir Finnson forseti LUF, Ragnhildur Helgadóttir rektor Háskólans í Reykjavík og Ríkey Jóna Eiríksdóttir landsforseti JCI 2022.
Eftirfarandi Íslendingar hljóta viðurkenningu í ár.
- Anna Sæunn Ólafsdóttir
Störf/ afrek á sviði menningar - Björn Grétar Baldursson
Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda - Daníel E. Arnarsson
Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda - Embla Gabríela Börgesdóttir Wigum
Störf/ afrek á sviði menningar - Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir
Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda - Ingvi Hrannar Ómarsson
Leiðtogar/ afrek á sviði menntamála - Sólborg Guðbrandsdóttir
Leiðtogar/ afrek á sviði menntamála - Stefán Ólafur Stefánsson
Störf á sviði viðskipta, frumkvöðla og/eða hagfræði - Viktor Ómarsson
Störf á sviði mannúðar- eða sjálfboðaliðamála - Vivien Nagy
Störf á sviði tækni og vísinda
Af þessum hópi verður einn einstaklingur valinn sem Framúrskarandi Ungur Íslendingur árið 2022.
Verðlaunin verða veitt 30. nóvember næstkomandi og mun Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson afhenda verðlaunin ásamt landsforseta JCI.
Fyrrum vinningshafar eru meðal annarra:
- Þórunn Eva Pálsdóttir
- Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir
- Ingileif Friðriksdóttir
- Pétur Halldórsson
- Ævar Þór Benediktsson
- Tara Ösp Tjörvadóttir
- Rakel Garðarsdóttir