Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar eru veitt árlega af JCI á Íslandi en samtökin eru um þessar mundir að veita verðlaunin í 20. skipti.
Þetta árið bárust hátt í þrjú hundrað tilnefningar frá almenningi en auglýst er eftir tilnefningum á hverju ári og getur hver sem er tilnefnt framúrskarandi ungan Íslending. Sérstök dómnefnd fer svo yfir tilnefningar og velur úr 10 framúrskarandi einstaklinga sem fá viðurkenningu og þar af einn verðlaunahafa.
Eftirfarandi hljóta viðurkenningu í ár (smelltu á nafnið til þess að sjá ítarlegri upplýsingar)
- Björt Sigfinnsdóttir
Störf /afrek á sviði menningar
- Chanel Björk Sturludóttir
Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
- Eyþór Máni Steinarsson
Störf á sviði viðskipta, frumkvöðla og/eða hagfræði - Hanna Ragnarsdóttir
Störf á sviði tækni og vísinda - Heiðrún Birna Rúnarsdóttir
Störf á sviði siðferðis og/eða umhverfismála - Isabel Alejandra Diaz
Leiðtogar/afrek á sviði menntamála - Sindri Geir Óskarsson
Störf á sviði mannúðar eða sjálfboðaliðamála - Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir
Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda - Þórunn Eva G Pálsdóttir
Framlag til barna, heimsfriðar og/eða mannréttinda
Af þessum hópi verður einn einstaklingur valinn sem Framúrskarandi Ungur Íslendingur árið 2021.
Dómnefnd skipaði Elísabet Brynjarsdóttir Framúrskarandi ungur Íslendingur 2020 og fyrrum framkvæmdastjóri Frú Raghnheiðar, Eyvindur Elí Albertsson verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og senator JCI, Guðjón Már Guðjónsson framkvæmdastjóri OZ, Ragnhildur Helgadóttir rektor Háskólans í Reykjavík og Ríkey Jóna Eiríksdóttir landsforseti JCI 2021.
Verðlaunin verða veitt 24. nóvember næstkomandi og mun Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson afhenda verðlaunin.
Meðal fyrrum vinningshafar eru:
- Ingileif Friðriksdóttir
- Pétur Halldórsson
- Ævar Þór Benediktsson
- Tara Ösp Tjörvadóttir
- Rakel Garðarsdóttir
- Sævar Helgi Bragason
- Guðmundur Stefán Gunnarsson